TRINI - HVAÐA LITUR ER FLOTTASTUR?
April 12, 2023

TRINI - HVAÐA LITUR ER FLOTTASTUR?

Okkar allra bestu og vinsælustu hælar heita TRINI og eru frá danska merkinu Anonymous Copenhagen.

Trini koma í þremur hæla hæðum:  4 cm sem er varla hæll, 5,5 cm meðal hæll og svo 7,5 cm sem er jafnframt vinsælasti hællinn en þetta er alvöru hæll;), akkúrat hæðin sem gerir allt fyrir okkur, lengir leggina og er sérlega fallegur á fæti.
Leðrið er afar mjúkt sem gerir það að verkum að þeir lagast hratt að fætinum. Þeir eru einnig leðurfóðraðir, með leður sóla (sem gerir þá að afbragðs dansskóm).  Þetta eru að margra mati með þægilegri hælaskóm þó svo að þeir séu bæði támjóir og 7,5 cm háir.




























Okkur fannst erfitt að velja liti í TRINI en það voru svo ótrúlega margir fallegir litir sem komu til greina.
Við eigum Trini í svörtu, brúnu, beige, bleiku, bláu, rauðu og grænu.

Hér finnur þú TRINI á Andrea.is.  TRINI 7,5 cm hæll – TINI 5,5cm hæll & TRINI 4 cm hæll.

Myndirnar hér að neðan eru úr innkaupaferð í Kaupmannahöfn.