KIMONO
May 30, 2018

KIMONO

KIMONO !


Ef það er einhver flík sem við elskum og passar við allt þá er það kimono!

Ég hef gert kimonoa í línunni okkar  alveg frá upphafi “AndreA”, við höfum gert þá stutta, síða, millisíða, þykka þunna og ég veit ekki hvað og hvað. 

Við gerum takmarkað magn í hverju printi en fáum ný print reglulega og eigum eiginlega alltaf til kimonoa í búðinni.
Við bíðum núna spenntar yfir printum sumarsins sem eru hvert öðru fegurra.
Við teljum niður dagana í næstu sendingu.

Spurningin sem ég fæ oftast í búðinni er:  Hvernig notar maður kimono?  

  • Spari yfir kjól eða samfesting, kimonoar eru oftast litrikír og þess vegna fullkomnir yfir svart.
  • Hversdags við gallabuxur og hlýrabol.
  • Á ströndinni eða við sundlaugarbakkann yfir sundbol eða bikiní.
  • Við stuttbuxur og hlýrabol í góðu veðri
  • Það má líka loka honum að framan og binda og nota hann eins og kjól.
  • Sem náttslopp á morgnana þegar vel viðrar þá er góður kaffibolli í flottum kimono rándýr hugmynd … ég held í alvörunni að kaffið verði betra ;)

Ég segi það ekki nógu oft en kimono er algjört möst í allar sólarlandaferðir,,,,  ALGJÖRT MÖST.
Ég fer alltaf með nokkra, það fer ekkert fyrir þeim í tösku, þeir eru notaður á hverjum einasta degi, yfir gallabuxur, stuttbuxur, kjóla eða sundföt og þú er með “náttslopp” líka.

Hér eru nokkrar myndir teknar af Trendnet blogginu: Trendnet.is/Andrea